I'm in a band. No, no, no, I don't sing. No, I don't play guitar. I play trambourine...lead trambourine!

laugardagur, maí 07, 2005

Flutningur

ég er flutt!

www.blog.central.is/harpaj

föstudagur, apríl 29, 2005

bleh

af hverju í andsk.... er svona leiðinlegt að lesa undir próf!?!?! síses

muhu....ég held að ástæðan fyrir því að það er svona leiðinlegt að læra fyrir próf er sú að maður er neyddur til að lesa á mettíma, ekki það að það sé einhverjum öðrum að kenna en manni sjálfum. Eins og til dæmis komst ég að því um daginn að ég myndi hafa miklu meiri ánægju af sögubókinni hefði ég lesið hana yfir alla önnina, en neeeeiii, éh ákvað að vera sniðug og lesa hana bara kvöldið áður, það myndi alveg reddast....en allt kom fyrir ekki...ég entist í 1og1/2 tíma, that's sad. Í þokkabót þá náði ég ekki að lesa nema einn sjötta lesefnisins því meira en helmingur tímans fór í það að skoða myndir....já, Ingunn Þóra, þú hefur áhrif!

en yfir í allt aðra sálma....passíusálmana?

nei, nenniggi

dimmisjóið var í dag og það var massíft, myndin þeirra toppaði samt ekki mynd míns elskulega bróðurs....engan annan en Árna „Rose“ Jóhannsson =)

muahahahaha

mánudagur, apríl 18, 2005

q-ka

ég gat ekki fundið betri fyrirsögn en þessa fyrir það sem ég ætla að tala.

s.l. sunnudagsmorgun fór ég í vinnuna og labbaði þá göngustíg sem er við sparkaup (samkaup strax ef ykkur líður betur) og eins og svo margir aðrir árla morguns þá var ég enn hálfsofandi og úldin...já, þegar ég átti leið um göngustíginn þá rakst ég þennan heljarinnar hundakúk og tók ég frekar stórann sveig framhjá og hugsaði með mér: „ooojjj“
en þegar það var soldið liðið á daginn þá skrapp samstarfsfélagi minn út í reykpásu og fór þá á þennan forláta göngustíg. Þegar hún sneri tilbaka þá var ég ekki frá því að hún var jafn græn í framan og start-takkinn á windows xp stýriforritinu. Þá hafði hún rekist hundakúkinn en hún vildi meina að þetta væri mannakúkur.
þegar svo klukkan sló fjögur þá hélt ég heim á leið og lá leið mín um göngustíginn aftur, þá athugaði ég málið nánar (samt ekki of nálægt) og komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta væri að öllum líkindum mannakúkur, það getur ekki verið að hundar kúki svona stórum kúk. Og ég hugsaði bara með mér: „ooojjj“

hver kúkar úti, ég bara spyr?!? :/...

...jú, svarið er einfalt

einhver full/ur kona/kall sem höfðu ekki vit fyrir því að „drulla“ sér inn til að gera þarfir sínar!!

mér blöskrar...

þriðjudagur, janúar 25, 2005

bloggsögukeppni

segðu þú þína sögu ;)

þriðjudagur, október 26, 2004

heimurinn versnandi fer

já, það er svona! ég nenni ekki einu sinni að skrifa neitt...ég var að furða mig yfir því um daginn að ég hef margar hugsanir og pælingar til að henda inn á síðuna en þegar kemur að því þá stoppar allt, ritstífla. En svo uppgötvaði ég rétt í þessu að það er enginn ritstífla, ég nenni bara ekki að skrifa þetta niður, finnst betra að nota talmál þegar kemur að alvarlegum og merkilegum umræðum. Þannig að þið getið búist við því að pistlar mínir verði innihaldslitlir ekki nema þá af einhverju bulli, eins og sagt er á góðri íslensku: useless noledge (eða hvernig sem það er nú skrifað)
hehe, var á kvikmynd.is um daginn og sá örugglega það neyðarlegasta sem hægt er að koma fyrir manneskju. Það var stelpa að syngja þjóðsönginn (bandaríska) á NBA-leik og þegar hun var hálfnuð eða svo þá ruglaðist hún, gleymdi textanum og náði ekki að byrja aftur en samt náði hún að hósta útúr sér hálfsögð orð, síðan gat hún með naumyndum haldið áfram þegar þjálfari eins liðsins kom og söng með henni. vægast sagt neyðarlegt!

sunnudagur, október 17, 2004

lítill heimur

hehe, ég rakst á þessa „frétt“ á 88.is

17.10.2004 14:10]Fjörugt laugardagskvöld Síðastliðið laugardagskvöld var hressandi í meira lagi. Þá opnaði sýning á ljósmyndum Arnars Fells og fullt af fólki heimsótti húsið. Fjölmargir kepptu í SingStar og gestir gæddu sér á ostum og fleira góðgæti ásamt því að njóta þess að virða fyrir sér verk Arnars. Það var góð stemning í húsinu allt kvöldið og húsið var opið til kl. 01.

hringja einhverjar bjöllur hjá ykkur? ;)

þriðjudagur, október 12, 2004

ætli ég auli ekki útúr mér nokkrum orðum um mitt aumkunarverða líf...neinei, það er svo sem ágætt þetta líf. er að bíða eftir að maturinn verði til, kjöt og karrí...jammíí :) ef maður pælir í því þá bragðast maturinn alltaf betri því svangari sem maður er, þannig að ég "skil" alveg þá sem gramsa í ruslatunnum til að leira sér ætis. einmitt, ég er sem sagt frekar svöng núna...

var að koma af rúntinum með mínum föður, þar sem ég er ekki svona kúl eins og vel flestir þá er ég nú bara með æfingaakstur eins og er , en minn tími mun koma og mun ég róta upp malbikið fljótar en ykkur mun gruna :)

æji, ég nenni þessu ekki, þarf að fara í sturtu, ef þið voruð ekki búin að finna óþefinn af mér. BÆ

mánudagur, október 04, 2004

skyldan kallar

ég ætlaði nú að sleppa mánudagspistlinum í dag en þar sem ég sé að ég er komin með mánudagspistlaaðdáendur þá hef ég það ekki á samviskunni að fresta þessu e-ð um óákveðinn tíma. Þó að tíminn ætti nú að fara í að lesa sögubókina og annað slíkt þá held ég að það er meira virði að láta vita af sér lifandi en að hanga yfir einhverri tusku sem gefur manni hvort sem er 10, úje...

fór í leiðangur í dag. ætlaði að sko að rífa mig og kaupa mér nýjann skrúfblýant þar sem nýi "góði" er að syngja sitt síðasta þessa dagana....en ég var ekki lengi að "beila" á honum því ég rakst á kassa fullan af geisladiskum þar sem á stóð: ALLIR GEISLADISKAR Á 500KR. og ég var ekki lengi að troða helv... blýantnum upp í óæðri endann á afgreiðsludömunni og sökkva mér í kassann. Mér til leiðinda voru þetta nú bara einhverjir smánardiskar sem hafa hangið í rekkanum í 7ár og aldrei verið keyptir og ég tók það ekki í mál að ég færi að kaupa þá....en seinna gat ég tekið gleði mína á ný því ég rakst á Greatest Hits með Björk...á 500kall...ekki lengi að grípa mér hann og kasta einum rauðum seðli í afgreiðslukonuna...þá reyndar í æðri endann.

ég nefndi það hér um daginn að það er mjög óþægilegt að vera með e-ð lag á heilanum en kunna einungis eina línu úr textanum, var að uppgötva hvað er líka einkar óþægilegt...vera með lag á heilanum (kunna meira en eina línu) en vita ekki hvaða lag það er, hvar maður hefur heyrt það eða með hverjum. Var með eitt slíkt í dag þangað til ég fékk hjálp og komst að því að lagið er úr hárinu, þá var reyndar gaman!

ástæða gæsalappanna fyrir utan "beila" hjá mér er sú að ég er ekki tilbúin að viðurkenna þetta orð inn í íslenskuna hjá mér, en ég er samt alltaf að reyna að koma því fyrir hvernig maður orðar það á íslensku, sem sagt íslensk þýðing á "beila". Mér þætti vænt um ef einhver væri svo vænn að upplýsa mig af góðri þýðingu =)

mánudagur, september 27, 2004

did you know you had að monster in your closet

ég held ég geri þetta bara að vana mínum, skrifa inn á mánudögum, þar sem það gerist svona sjálfkrafa.
mig langaði að deila með ykkur gamansögu úr lífi mínu: ég fór í skífuna á föstudaginn, ég var búin að bíða eftir þessum degi í heilan dag og loksins rann hann upp :) ég náði að spreða í geisladiska fyrir rúmar sex-þús-und-kró-nur (veit ekki af hverju - er, það er bara kúl) og fékk sko tvo kaupauka í kaupætti..aha, gerið betur!! fékk James Brown-disk (sara var reyndar búin að gefa mér sitt eintak af honum, þannig að ég á núna tvö eintök af honum en gæti átt þrjú því í þar síðustu skífu-ferð þá ætlaði ég að kaupa hann en gerði það nú ekki, tek þá ályktun að það hafi svifið yfir mér skynsemis-ský sem lét mig ekki kaupa diskinn) svo fékk ég miða á dávaldinn, en var ekki nógu kúl og beilaði á kallinum...njah, fannst bara kúl að eiga miða sem á að kosta tvö-þúsund og fimmhundruð krónur en ég fékk hann frítt....og það var meira að segja átján ára inn, pælið í því ! þannig að ef einhver hefur áhuga á að eignast James Brown-disk (óopnaður) og ónotaðan dávaldsmiða þá megið þið hirða diskinn en miðinn er minn, þannig að ...... SORRY!! muahaha..

ég er komin með móral, mér finnst ég vera að halda framhjá Love is Here með Starsailor, er nefnilega orðin skotin í örðum disk...*roðn*...The Coral með The Coral =)

hvernig smakkast?

það er aðeins einu sinni sem ég elska kennarana í FS...þegar þeir eru veikir =) er bara heima í nettu chilli á kantinum í Love Guru gallanum og með scooter á fóninum!


mánudagur, september 20, 2004

mánudagsþynkan

ef mánudagar eru ekki ömurlegustu dagar allra tíma þá veit ég ekki hvað!!! :/ þessi mánudagur var extra ömurlegur, mér finnst ég aldrei hafa verið þreyttari, drepast í maganum, nokkur próf í þessari viku og öll helv... vikan í næstu helgi!!! muhuuu...en held að það verði þess virði því ég er að fara í sumarbústað um helgina og eflaust á útsöluna í skífunni, ollræt =) úff, þar mun sumarpeningurinn fara....fyrir mikið :)

það eru bæði kostir og gallar við það að vera í eyðu í fyrsta tíma, jú kosturinn er sá að maður fær að "sofa út"...og gallinn er einfaldlega sá að við (eða allavega ég) tökum þessu of bókstaflega og förum úber seint að sofa því við fáum að "sofa út" og fyrir vikið verður snoozið helmingi styttra en þá daga sem við fáum ekki að "sofa út".

þó það sé ömurlegt að gera mistök, en þá er allavega eitt gott hægt að læra af því...gera ekki helv...mistökin aftur!!!!